Kanínan með ljáinn

fimmtudagur, maí 26, 2005

Líðan mín þrjú

Færslan hér á undan var skrifuð í hálfleik þegar Liverpool var að tapa 3-0

En líðan mín núna er ÆÐISLEG!! Vá hvað það er gaman að vera til :D:D:D

miðvikudagur, maí 25, 2005

Líðan mín 2

Mér líður hræðilega

Líðan mín

Mér hefur aldrei liðið svona skringilega á ævinni :o..Ástæðan? Hvað haldið þið!

Auðvitað er ástæðan sú að Liverpool eru að fara að keppa á móti AC milan í úrslitum meistaradeildarinnar. Líðan mín einkennist af gleði, spennu í bland við tilhlökkun og meiri gleði. Ég svaf í fjóra tíma í nótt, og mig dreymdi 3 liverpool drauma, þrír úrslitaleikir og Liverpool vann þá alla þannig að ég trúi ekki öðru en að það gerist í kvöld, ég trúi ekki að liðið mitt tapi þessum leik í kvöld.

Annars er það að frétta að ég er hérna einn heima blastandi Megas í botni í bland við Meistaradeildarlagið og You'll never walk alone, svo horfi ég á Liverpool myndbönd, skoða liverpool myndir og les Liverpool fréttir. Þetta er einfaldlega einn af stærstu viðburðum lífs míns, ef ekki sá allra stærsti! Gifting hvað!

Að lokum vil ég óska Ömmu og Gumma til hamingju með afmælið í gær, Amma orðin 79 ára og Gummi 19..veiviei. Svo á Benni afmæli á þessum frábæra degi, kappinn orðinn 17 ára og vonum að poolararnir gefi honum eitthvað gott.

p.s. Getur eitthver útskýrt af hverju það kveiknar alltaf sjálfkrafa á iPodnum mínum á nóttunni án þess að ég komi nokkuð nálægt því?!?

p.s. 2- Ég held að það sé frekar ómögulegt að tala um neitt annað en fótbolta við mig í dag, en það má reyna ;)

þriðjudagur, maí 24, 2005

FIMM áttaátta fimmfimm tveirtveir

http://www.eoe.is/liverpool/gamalt/xabi_and_cup.jpg">

Heyrðu, það er eitthver leikur á morgun...

sunnudagur, maí 22, 2005

Sko mig

Jább...sörpræs sörpræs, sólarhringurinn er aftur kominn í fokk hjá mér(enda frí:O) og hér er ég að reyna að vaka í sólarhring...eða 30 og eitthvað tíma svo ég ætla að skrifa eitthvað sniðugt hérna til að halda mér vakandi...

Ég er ekki enn kominn með vinnu en býst þó við að fá vinnu hjá póstinum, held það sé hress vinna
Skemmtilegt að ég sé búin að vera heilan vetur með sama veskið...ÁN ÞESS AÐ TÝNA ÞVÍ...geri aðrir betur :p Held þetta sé persónulegt met, gamla metið var átta mánuðir, ég hélt upp á það og týndi veskinu nokkrum dögum seinna

p.s. Hver er þessi Biggi Beikon sem skrifar hérna í kommentin:o...Ég gruna Stefán Má-skammskamm Stefán!

p.s. 2- FRAM- kr í kvöld...á kr vellinum...býst við sigri að sjálfsögðu

p.s. 3-Er kominn með nýja White stripes diskinn í hendurnar og hann er fjandi góður verð ég að segja:D

ps. 4-Ég hitti Bó Halldórs í gær..hann sagði Komdu sæll og blessaður....ég vissi ekki hvað átti að gera en ég verð seint talinn aðdáandi mannsins en þetta bætti þó álit mitt á honum

miðvikudagur, maí 18, 2005

Jájá

Já, það eru allavega eitthverjir sem lesa þessa síðú, ánægður með það:D

En einkunnirnar eru komnar og ég er barasta nokkuð sáttur. 7,1 í aðaleinkunn og ekkert fall..jebeibe.


Svo er vika í úrslitaleikinn :D

Meðmæli dagsins:

Nýja System of a down platan(Mezmerise)...Mögnuð plata hér á ferð, mun betri en ég átti von á.
Mæli með að fólk verði sér útum eitthvað stöff með Pelé hinum mæta manni, þvílíkt og annað eins hef ég ekki séð, langbesti fótboltamaður allra tíma og hananú! Reyndar gátu Zidane og Maradona eitthvað sosum:p


svo þessi kall

sunnudagur, maí 15, 2005

Tímamót

Núna eru nokkur merkileg tímamót – Árið að verða hálfnað, skólaárið búið og svo e ár síðan ég fór með Ölduselsskóla í eina allra eftirminnilegustu ferð frá upphafi.

Hálfsársuppgjörið:

Þessir fyrstu sex mánuðir hafa verið frekar leiðinlegir og það er ekki mikið sem hefur drifið á daga mína nema helst skólinn. Og svo að sjálfsögðu mikil velgengni Liverpool í Meistaradeildinni, það hefur sannarlega lyft þessu heilmikið upp. Annað er lítið merkilegt sem að ég gerði(allavega ekkert sem ég man akkúrat núna, en hér koma verðlaun fyrir þessa fyrstu 6 mánuði.


Best fyrstu 6 mánuðina:

Besti leikur:

Seinni leikur Liverpool gegn Chelsea, alveg frábær barátta í liðinu og áhorfendur voru betri en best.

Besti diskur:

Diskurinn Employment með hljómsveitinni Kaiser Chiefs finnst mér vera besti diskur ársins hingað til, en á náttúrulega eftir að hlusta á heilan glás. En þessi diskur er eins og góð blanda af Blur og Killers og eitthvað….stuðstuðstuð.

Besta mynd:

Held að besta mynd hálfsársins 2005 sé myndin Der Undertang(Downfall á ensku). En sú mynd fjallar um seinustu daga Hitlers. Myndin er mjög raunsæ og góð og gefur manni góða innsýn í hvernig ástandið var á þessum tíma.

Besta lag:

Lagið I predict a riot með Kaiser chiefs. Stuð út í gegn og já…

Besti þáttur:

Þáttur ársins er án efa fyrsti þátturinn í fjórðu seríunni af Family guy. Ég var búinn að bíða eftir þessum þætti í meira en hálft ár enda búinn að raðnauðga hinum þrem seríunum. Og þessi þáttur stóðst allar væntingar sem ég hafði gert til hans og meira en það(og væntingarnar voru MIKLAR, enda bestu þættir í heimi :D). Ég er reyndar líka búinn að horfa á þátt tvö, og hann var ekki mikill eftirbátur þess fyrsta. Svo framtíðin er björt.

Skólauppgjörið:

Þessi önn er búin að vera miklu strembnari en fyrsta önnin í MS. Bæði hefur verið meira heimanám og meira stress vegna prófa. Og talandi um prófin, þá eru þau búin eftir mikinn lestur og mikil leiðindi. Mér gekk vel held ég barasta og held ég sleppi alveg við fall.

Bekkurinn minn var frekar slakur ef ég á að segja alveg eins og er, en samt óneitanlega nokkrir snillingar innan um allt draslið. Bekkurinn var full klíkuskiptur og það er alltaf slæmt. Einnig hættu margir í bekknum en ég get ekki sagt að ég sakni þeirra sem hættu neitt gríðarlega mikið, enda talaði ég takmarkað við þau. 7 krakkar voru hættir fyrir vorprófin og ég held að eftir vorprófin fara svona 10 til viðbótar í nýjan skóla, taka fyrsta bekk aftur eða hætta. Það er frekar skítt, en þá er bara að bekkjarblöndunin heppnist betur á næsta ári, ég hef trú á að það gerist.

Kennararnir hafa verið upp og ofan. Líffræðikennarinn er leiðinlegasti maður sem jörðin hefur alið og auk þess að vera húmorslaus var hann einnig hreinlega glataður kennari, sá versti sem ég hef haft. Ég kúgast enn þegar ég labba framhjá stofunni hans og þakka guði fyrir að þurfa aldrei að mæta í tíma hjá honum aftur.

Stærðfræðikennarinn virtist vera orðinn eitthvað þreyttur í enda ársins og hann vissi oft á tíðum ekkert hvað hann var að gera. Samt fyndinn kall og skapstór, en hann var nú ekki góður stærðfræðikennari enda var það oft sem hann fór í fýlu og neitaði að kenna okkur.

Svo voru aðrir kennarar bara í eitthverju miðjumoði, félagsfræðikennarinn samt bestur að mínu mati.

p.s. Þar sem mér sýnist að enginn sé að lesa þessa síðu þá hef ég ákveðið að ef ég fæ ekki eitthver komment við allavega þetta blogg þá hættir þessi síða. Ég nenni ekki að vera að skrifa fyrir ekki neinn.

þriðjudagur, maí 03, 2005

Hellooooo Istanbul

Jájájá....Liverpool eru komnir í úrslitaleik meistaradeildarinnar eftir 1-0 sigur á chelski.......vávávává hef sjaldan verið jafn glaður og eftir leikinn og sjaldan jafn stressaður og í leiknum.........held ég kaupi miða á morgun á úrslitaleikinn

nóg um það, ég er glaður!!!!!!!!:D:D:D:D:D