Kanínan með ljáinn

sunnudagur, maí 15, 2005

Tímamót

Núna eru nokkur merkileg tímamót – Árið að verða hálfnað, skólaárið búið og svo e ár síðan ég fór með Ölduselsskóla í eina allra eftirminnilegustu ferð frá upphafi.

Hálfsársuppgjörið:

Þessir fyrstu sex mánuðir hafa verið frekar leiðinlegir og það er ekki mikið sem hefur drifið á daga mína nema helst skólinn. Og svo að sjálfsögðu mikil velgengni Liverpool í Meistaradeildinni, það hefur sannarlega lyft þessu heilmikið upp. Annað er lítið merkilegt sem að ég gerði(allavega ekkert sem ég man akkúrat núna, en hér koma verðlaun fyrir þessa fyrstu 6 mánuði.


Best fyrstu 6 mánuðina:

Besti leikur:

Seinni leikur Liverpool gegn Chelsea, alveg frábær barátta í liðinu og áhorfendur voru betri en best.

Besti diskur:

Diskurinn Employment með hljómsveitinni Kaiser Chiefs finnst mér vera besti diskur ársins hingað til, en á náttúrulega eftir að hlusta á heilan glás. En þessi diskur er eins og góð blanda af Blur og Killers og eitthvað….stuðstuðstuð.

Besta mynd:

Held að besta mynd hálfsársins 2005 sé myndin Der Undertang(Downfall á ensku). En sú mynd fjallar um seinustu daga Hitlers. Myndin er mjög raunsæ og góð og gefur manni góða innsýn í hvernig ástandið var á þessum tíma.

Besta lag:

Lagið I predict a riot með Kaiser chiefs. Stuð út í gegn og já…

Besti þáttur:

Þáttur ársins er án efa fyrsti þátturinn í fjórðu seríunni af Family guy. Ég var búinn að bíða eftir þessum þætti í meira en hálft ár enda búinn að raðnauðga hinum þrem seríunum. Og þessi þáttur stóðst allar væntingar sem ég hafði gert til hans og meira en það(og væntingarnar voru MIKLAR, enda bestu þættir í heimi :D). Ég er reyndar líka búinn að horfa á þátt tvö, og hann var ekki mikill eftirbátur þess fyrsta. Svo framtíðin er björt.

Skólauppgjörið:

Þessi önn er búin að vera miklu strembnari en fyrsta önnin í MS. Bæði hefur verið meira heimanám og meira stress vegna prófa. Og talandi um prófin, þá eru þau búin eftir mikinn lestur og mikil leiðindi. Mér gekk vel held ég barasta og held ég sleppi alveg við fall.

Bekkurinn minn var frekar slakur ef ég á að segja alveg eins og er, en samt óneitanlega nokkrir snillingar innan um allt draslið. Bekkurinn var full klíkuskiptur og það er alltaf slæmt. Einnig hættu margir í bekknum en ég get ekki sagt að ég sakni þeirra sem hættu neitt gríðarlega mikið, enda talaði ég takmarkað við þau. 7 krakkar voru hættir fyrir vorprófin og ég held að eftir vorprófin fara svona 10 til viðbótar í nýjan skóla, taka fyrsta bekk aftur eða hætta. Það er frekar skítt, en þá er bara að bekkjarblöndunin heppnist betur á næsta ári, ég hef trú á að það gerist.

Kennararnir hafa verið upp og ofan. Líffræðikennarinn er leiðinlegasti maður sem jörðin hefur alið og auk þess að vera húmorslaus var hann einnig hreinlega glataður kennari, sá versti sem ég hef haft. Ég kúgast enn þegar ég labba framhjá stofunni hans og þakka guði fyrir að þurfa aldrei að mæta í tíma hjá honum aftur.

Stærðfræðikennarinn virtist vera orðinn eitthvað þreyttur í enda ársins og hann vissi oft á tíðum ekkert hvað hann var að gera. Samt fyndinn kall og skapstór, en hann var nú ekki góður stærðfræðikennari enda var það oft sem hann fór í fýlu og neitaði að kenna okkur.

Svo voru aðrir kennarar bara í eitthverju miðjumoði, félagsfræðikennarinn samt bestur að mínu mati.

p.s. Þar sem mér sýnist að enginn sé að lesa þessa síðu þá hef ég ákveðið að ef ég fæ ekki eitthver komment við allavega þetta blogg þá hættir þessi síða. Ég nenni ekki að vera að skrifa fyrir ekki neinn.

5 Ummæli:

  • At 6:24 e.h., Anonymous Nafnlaus sagði…

    dónt stopp!

     
  • At 2:13 f.h., Anonymous Nafnlaus sagði…

    Bloggið hans Bigga er afar gott
    kjappinn leynir á sér!
    Það er mér eins og gæðatott
    burger því ég þakka þér.

     
  • At 1:59 e.h., Anonymous Nafnlaus sagði…

    Liverpool-Liverpool!!!

     
  • At 8:20 e.h., Anonymous Nafnlaus sagði…

    Nei ekki hætta

     
  • At 12:24 f.h., Blogger poolarinn sagði…

    vó...það er þá fólk sem les bloggið mitt:o

    reyndar verð ég að vera duglegri að blogga!

     

Skrifa ummæli

<< Heim