Omg
85 ballið margrómaða var svo í seinustu viku og bara vá, þvílík geðveiki :D Engin slagsmál og Ms-ingarnir náðu að haga sér…Buff er svo besta band í heimi og Pétur Jesús heilsaði mér...hann er bestur.
Queen er hljómsveit stundarinnar, eitthvað svo fullkomið alltsaman hjá þeim og Freddie Mercury náttúrulega algjör snjélli.
White stripes á sunnudaginn :o Vá sjettabjétt, platan De Stijl er ein af mínum uppáhalds plötum, alltof hressó.
Öhhhh…veit eitthver um góða einkakennslu í eðlisfræði? Er illilega að skíta á mig í því fagi, kennslubókin hörmung og kennarinn var veikur í mánuð, auk þess sem ég sofna nánast í hverjum eðlisfræðitíma.
Sprite blandað við kók er besti drykkur í heimi. Hafið meira af spræti en kóki, hlutföllin kannski 5/8 sprite og 3/8 kók.
http://video.google.com/videoplay?docid=5193769843458973436&q=zidane Okei, ef þetta er ekki allra sjúkasta íþróttalýsing í heiminum þá heiti ég Hundur…Höddi Magg hvað segi ég nú bara.Og geggjað mark líka.
Pirrandi lag dagsins: Brekfast at tiffany’s….þetta lag hefur allt til að vera pirrandi.
Gunnar í krossinum er ekki synd, hann er sjúkdómur
Takkogbless
1 Ummæli:
At 2:17 e.h., Nafnlaus sagði…
Hahaha! Þvílík lýsing!!! :D
Haha!
Og já, ég held að það sé erfitt að komast á eitthvað námskeið fyrr en í byrjun næsta árs, því nú eru námskeiðin sennilega öll komin langt á leið... annars veit ég lítið um þetta og gæti bara verið að bulla :D
Skrifa ummæli
<< Heim