Kanínan með ljáinn

þriðjudagur, janúar 11, 2005

Ádds

Nú í morgun rétt áður en ég fór í skólann atvikaðist svolítið undarlegt.

Ég rankaði allt í einu á miðju gólfinu í herberginu mínu með þennan þvílíka hausverk og kúlu á hausnum. Ég man ekki hvernig ég komst á gólfið, en mig minnir að ég hafi verið vakandi nokkrum mínútum áður, svo ég hef annaðhvort dottið úr rúminu í svefni(man þó ekki eftir því að mig hafi verið að dreyma illa) eða þá að ég hafi einfaldlega misst meðvitund. Ég minnist þess ekki að þvíumlíkt hafi skeð fyrir mig áður. Kúlan er að mestu leyti farin en samt er ég sár á enninu...jisús.

Þetta óhapp varð til þess að mér varð óglatt og með hausverk eins og áður segir og hindraði það mig frá því að mæta í skólann, í staðinn hlustaði ég á eiturhressan tvíhöfðann..oinkoink.



Ef þið viljið kommenta þá kommentið þið bara sem Anymous, farið í Post a comment og gerið "Post anymously".

Það er að segja, farið í þar sem stendur kannski 1 comment(eða eitthver tala) og þar inni stendur Post a comment. Þegar ýtt er á þann link er ýtt á "
Post anymously".

2 Ummæli:

  • At 7:27 e.h., Anonymous Nafnlaus sagði…

    Einu sinni datt ég úr efri-koju í skipi (Norrænu) og vaknaði ekki fyrr en um morguninn með hausverk og stóra kúlu. Slæmt. Slæmt. Samhryggist.

    R.P.

     
  • At 9:29 e.h., Anonymous Nafnlaus sagði…

    æji greyjið

     

Skrifa ummæli

<< Heim